Velkomin

12.12.2008 15:31:45 / Hófý

Jæja þá...

er ekki komin tími á að skrifa eitthvað pínu?
Ég er bara búin að vera að undirbúa jólin hérna heima hjá mér, er að verða búin að svona flest öllu, á eftir að baka, henda upp smá skrauti, kaupa örfáar jólagjafir, pakka þeim inn og senda.

Það er ekki hægt að segja að það sé einhver kreppubragur á þessum desember hjá okkur Brynjari, fórum á jólahlaðborð síðustu helgi, erum svo að fara á Frostrósartónleikana í kvöld og svo á annað jólahlaðborð 20. des.

Get svo sem ekki sagt að ég sé búin að gera eitthvað rosalegt á þessum tíma sem ég hef ekkert bloggað, nánast eiginlega ekki neitt... bara sinna börnum og búi.
voða lítið líf sem maður hefur fyrir utan það.

En það er nú komin smá tilhlökkun í jólin, Sigurbjörn kannski með aðeins meira vit á að rífa utan af pökkunum sínum :D þetta verður bara gaman!
Ætlum að vera hérna heima á aðfangadagskvöld og á gamlárskvöld, sem er í fyrsta skipti hjá mér og Brynjari síðan við byrjuðum saman, höfum alltaf verið með mömmu og pabba.
En núna ákváðum við bara að vera heima með börnunum okkar, svo getur vel verið að við kíkjum eitthvert út þegar við erum búin að borða, þá væntanlega til mömmu og pabba :P

En allavega, ég held að þetta sé komið gott í bili.
Hef í rauninni ekkert að segja, langaði bara að láta vita að ég er á lífi.

Þangað til seinna
Hófý


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.09.2008 23:58:25 / Hófý

Komin enn ein stelpan :)

Jább, þriðja barnið og það síðasta á þessu ári er komið og það var stelpa.
Það má segja að þetta sé sannkallað stelpuár í minni famelíu, fyrst Ingibjörg Jóna dóttir mín, svo Anna Charlotta? (leiðréttið mig ef ég er að fara með þetta eitthvað vitlaust) hans Magga og svo skvísan hennar Sögu.

Það kom sem sagt stelpa hjá Sögu systur og Hlyn á slaginu 5 morguninn 17. september, hún var 51 cm og 13 og hálf mörk. Það er búið að nefna hana og heitir hún Tanya Rós.

Hérna er linkur inná síðuna hennar þar sem er hægt að sjá myndir http://barnaland.is/barn/69201/

Til hamingju með hana elskurnar, hún er alger snúlla

En annars er afskaplega lítið að frétta af okkur. Bara same old same old....

Þangað til seinna
Hófý - margföld móður/föðursystir

» 5 hafa sagt sína skoðun

22.08.2008 23:56:09 / Hófý

Lítil stelpa komin í heiminn

20. ágúst eignuðust Maggi bróðir og Mary stelpu :haha: hún var 18 merkur og 55 cm.
Hún er fædd (held ég) í Eistlandi, þaðan sem Mary er. Get ekki beðið eftir að fá að sjá myndir eða bara að fá að sjá hana :)
Hún er fyrsta barn Magga en 4 barn Mary.
Til hamingju litla/stóra fjölskylda.

Svo styttist í að næsta barn láti sjá sig, bara rétt um 3 vikur í settan dag hjá Sögu.


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.08.2008 22:06:26 / Hófý

18.08.38

Þennan dag fyrir 70 árum fæddist hún amma mín, Saga Jónsdóttir, oftast kennd við Rauðá.
Fyrir mér var þetta merkileg kona! alltaf gat maður verið viss um það að skemmta sér vel þegar kíkt var í kaffi til hennar. Endalaust sem við gátum setið og spjallað yfir kaffibollanum.

Mér þótti mikill missir af henni fyrir rúmum 4 árum þegar hún féll frá, og finn en til söknuðar, á sennilega eftir að gera það lengi.

En minning hennar lifir í hjörtum þeirra sem þekktu hana og voru það nú ekki fáir, mannblendnari manneskju hef ég sennilega ekki hitt. Mér fannst stundum eins og hún þekkti alla!

Við gerðum okkur gott kvöld við fjölskyldan heima hjá mömmu og borðuðum góðan mat til minningar um ömmu, leitt að Gimmi gat ekki verið með okkur, en hann kemur heim aftur á morgun.

Til hamingju með daginn elsku amma mín!



Ein eld gömul af ömmu og mér :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.07.2008 20:32:28 / Hófý

Jæja þá

Ætli sé þá ekki best að reyna að koma einhverju hérna niður.
Það er búið að vera nóg að gerae hjá okkur undanfarið, erum búin að vera að koma garðinum í eitthvað stand, mikil vinna eftir við það, svo er ég byrjuð aðeins að skrapa gluggakarma og hurðir, ætla svo að mála það fljótlega, svona aðeins að gefa húsinu smá andlitslyftingu.

Vorum á fjölskyldugrilli hjá Brynjars fjölskyldu á laugardaginn og var það bara alveg rosalega gaman! Var það haldið á Skagaströnd í þetta skipti, sem var nú alls ekki slæmt, þar sem það er nú ekki svo langt að fara, skruppum í rauninni bara. Lögðum af stað frá akureyri um eitt leitið og vorum svo komin heim um miðnætti.

Á sunnudagskvöldið (gærkvöldi) var svo grill uppá Rauðá, í minningu um ömmu sálugu sem hefði orðið sjötug núna í ágúst, komum við þar saman þeir afkomendur hennar sem komust, vantaði þar Gimma og Malan og co, sem voru öll löglega afsökuð.

Þar gripum við aðeins í fjórhjólið hans Villa og skemmtum okkur alveg konunglega, ég, Brynjar, Sigurbjörn, pabbi og the crazy pregnant lady ;) hún Saga Karen. Hinir hafa eflaust haft gaman af því að fylgjast með.

Hefur alveg hellingur annað gerst síðan ég bloggaði síðast, ég er bara að verða svo gömul að ég það hefur eitthvað skolast til í hausnum á mér.

Erum búin að vera með grillið hennar mömmu (pabba?) í láni og höfum alveg farið hamförum í grillkjöts áti núna undanfarið, en mamma (pabbi?) fer að fá grillið sitt aftur þar sem það er á stefnuskránni að kaupa svoleiðis grip þegar efni eru á því.

Pabbi gaf okkur svo þetta rosalega flotta sett á pallinn, borð og 4 stóla og mamma gaf okkur svo Senseo kaffivél, þannig að þeir sem vilja fá sér kaffibolla úti í góða veðrinu eru velkomnir í heimsókn, svo og hinir líka :) ég skal reyna að eiga eitthvað gott að drekka handa þeim, og ef það er góður fyrirvari á því, þá gæti vel verið að ég ætti einn eða tvo ískalda í kælirnum.

En ég ætla að láta þetta gott í bili

Þangað til seinna
Hófý

og reyniði svo að vera duglegri við að láta vita af ykkur, hér og annarsstaðar


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.06.2008 20:12:52 / Hófý

Er ekki alveg komin tími á smá :)

Hæhæ

Það hefur nú eitt og annað gerst síðan ég skrifaði hér síðast :)
Við erum búin að skíra dömuna, hún var skírð 17. maí síðastliðin í Stærra- Árskógskrikju og var veislan haldin í Sal veislumiðlunar á Árskógssandi, heppaðist allt eins og í sögu og mæting framar öllum vonum :D

En í dag er ár síðan Sigurbjörninn var skírður :) mikið rosalega er tíminn fljótur að líða.

Svo skellti ég mér á Blönduós á laugardaginn, þar sem Solla systir var að fagna því að vera komin á fertugsaldurinn :) alveg rosalega gaman, svo fór ég bara heim með Sögu og Hlyn um nóttina, vorum komin hingað um hálf þrjú.
Á sunnudaginn tókum við fjölskylduna okkar svo í bilinn og skruppum smá rúnt uppí Mývatnssveit og til baka. Vorum að hugsa um að koma við á Rauðá og skoða lömbin, en þar sem sauðburðurinn er ekki alveg búin, þá ákváðum við að láta það bíða betri tíma, eða þangað til allt er búið og þeir búnir að fá að hvíla sig aðeins.

Svo er bara búið að vera alveg YNDISLEGT veður hérna, vægast sagt! var í 15-17 gráðum hér í dag í skugganum og blanka logn. Enda er ég búin að vera mikið á röltinu hérna með börnin :)

En það er svo sem ekki mikið meira í bili.
Þangað til seinna
Hófý


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.04.2008 12:29:35 / Hófý

Gleðilegt sumar :)

og takk fyrir veturinn!

Það er nú samt ekki alveg hægt að segja að það sé eitthvað sumarveður hérna akkúrat núna.. búið að vera skít kalt og smá snjókoma. Alveg var það örugt að það yrði eitthvað svona fyrst ég er komin með kerru til að fara með bæði börnin í göngutúr.. Er orðin alveg hooked á því að komast út að labba! :d

En allavega, það gengur allt bara ágætlega hér, nema Sigurbjörn er að taka fleyri tennur og er alveg voða lítill eitthvað. Þarf voðalega lítið til að hann fari að væla núna, litla skinnið.
Sem betur fer, þá virðist Ingibjörg litla ætla að verða eins og Sigurbjörn var, bara vær og góð :d þannig að það er bara æðislegt!

Svo erum við búin að ákveða skírnardag, það á að skíra dömuna 17. maí. Reyndar á eftir að tala við prestinn :P en það verður gert í dag.

Jæja, ég ætla ekki að hafa þetta meira í bili.

Þangað til seinna
Hófý


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.04.2008 09:15:39 / Hófý

Komin lítil dama :)

Hæhæ :)
Loksins ákvað bumbubúinn að koma í heiminn :D
Lítil dama skaust í heiminn aðfaranótt 1. apríl, ég misti vatnið hérna heima kl 1:30 og daman var komin kl. 2:39, ég komst ekki inná sjúkrahús einusinni til að eiga hana, þannig að hún er fædd í bílnum fyrir utan sjúkrahúsið. Brynjar náði sem betur fer að kalla í ljósmóður :D smá asi á prinsessunni. Hun var 51 cm og rétt tæpar 14 merkur.
Við erum alveg eldsprækar og daman vær og góð :D
Við erum búin að nefna hana og heitir hún Ingibjörg Jóna í höfuðið á ömmum sínum.

Getið séð síðuna hennar hérna.

Þangað til seinna
Hófý


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.03.2008 14:56:28 / Hófý

:)

Hallú!
Ég er að verða eitthvað voðalega löt við þetta... langar að blogga en hef bara ekkert að segja, svona þannig.
Það er ekkert að gerast í að koma krílinu í heiminn... enda sennilega bara í gangsetningu á mánudaginn.
En ljósi parturinn er allavega að Sigurbjörn náði að verða eins árs áður en hann varð stóri bróðir :D
Varð sem sagt eins árs í gær litli prinsinn! Skelfilega er tíminn fljótur að líða! Ég þarf að fara að plana fermingu áður en ég veit af því... :$
Páskarnir voru alveg yndislegir.. eða þannig... lágum hérna öll í flensu og ógeði og horfðum á fallega veðrið í gegnum gluggana, ohh... ömurlegt að vera bundin svona inni með flensu þegar það er svona fallegt veður, hefði alveg verið til í að fara á snjósleða eða jafnvel bara á rúntinn :) Kannski heimsækja sveitina góðu og sýna Sigurbirni dýrin aftur :)
Jæja, veit svo sem ekki hvað ég er að bulla hérna.
Ætli við verðum ekki orðin 4 í kotinu þegar næsta færsla lætur sjá sig ;)

Þangað til seinna
Hófý


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.03.2008 19:40:54 / Hófý

Hæhæ

Jæja!
Síðasta mæðraskoðunin var í dag, þar sem var tekin ákvörðun um það að gera eitthvað fyrir mig á þriðjudaginn í næstu viku, sem sagt 25. mars :) Veit ekki alveg hvað á að gera þar sem ég var ekki alveg með rænu á því að spyrja útí það. Er bara orðin svo ógeðslega þreytt! Þannig að ljósan okkar ákvað að senda mig uppá sjúkrahús í smá tékk og jafnvel á láta hreifa við belgnum.
Við erum ekkert smá fegin, aðallega ég þó, að þetta fari að verða búið.

Ætla bara að reyna að ná þessari pest úr mér sem ég virðist vera búin að ná mér í.. æðislegt.

En það er svo sem ekkert að frétta hér, allt við það sama bara. Erum búin að mála aðeins og eigum slatta eftir, eigum allavega eftir að skella málningunni á stofuna, sem er til í fötu hérna inní þvottahúsi :P hehe

Þangað til seinna
Hófý


» 8 hafa sagt sína skoðun

24.02.2008 18:50:29 / Hófý

Konudagur...

þá er hann komin en eina ferðina blessaður... :$
til hamingju konur!
ætlaði bara svona aðeins að láta vita af mér.. allt við það sama hérna bara, er reyndar að verða svolítið þreytt, en það styttist.

Veit svo sem ekkert hvað ég á að segja, langaði til að blogga aðeins.
jú við Sigurbjörn kíktum aðeins í sveitina á föstudaginn, rosalega gaman bara :) kíktum aðeins á kindurnar, geiturnar og kiðlingana. Sigurbjörn var samt mest hrifin af kindunum ;) getið séð myndir inná síðunni hans.

En þangað til seinna
Hófý


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.02.2008 15:42:38 / Hófý

Nýtt blogg

hallú!

allt gott að frétta héðan! komin alveg slatti af snjó, en hann virðist samt vera að fara... og Brynjar greyið sem var að ná í snjósleðann okkar :P hehe alltaf eitthvað svona

Ætlum að skella okkur á þorrblót næstu helgi, og ég hlakka ekkert smá til! verður alveg rosalega næs að komast út bara við tvö :) Saga systir ætlar að vera svo yndisleg að sleppa því að fara svo að hún geti passað fyrir okkur! fékk samt smá samviskubit að vera að þyggja þetta hjá henni, en hún stendur fast á sínu :D ætlar að vera hjá Sigurbirni ;) hún á þá bara inni pössun hjá mér þegar þar að kemur :haha:

já, það bætist líka heldur betur við fjölskylduna þetta árið! ég að fara að koma með okkar kríli, Saga kemur með eitt í enda ágúst, svo er Maggi bróðir og kærastan hans að koma með eitt kríli í ágúst/sept, svo fylgja 3 stykki með henni! þannig að það er smá fjölgun hjá gamla settinu af barnabörnum og "barnabörnum" :) bara gaman af því!

jámm... veit svo sem ekki hvað ég á að segja mikið meira, er búin að vera að gera húsið okkar aðeins sætara :) keypti eldhúsgardýnur, (var með jólagardýnurnar uppi þangað til ég fann þær sem mig langaði í;) og svo keypti ég sætan spegil í stofuna :) þetta kemur smátt og smátt... þarf samt að fara að fjárfesta í málningu, gegnur ekki svona lengur :P

en þangað til seinna... endilega kvitta aðeins meira takk :)

Hófý 


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 15:34:12 / Hófý

Daginn!

Ég er bara alveg hissa yfir öllum þessum heimsóknum á síðuna mína! hvað er í gangi? eru svona margir að njósna um mig eða er bara einhver sem á sér einfaldlega ekkert líf? :o hátt í 200 í dag og klukkan bara hálf fjögur!

En allavega, þá langaði mig bara að láta vita aðeins af mér, er svona aðeins farin að fara í gegnum ungbarnafötin og finna til allt hlutlaust :) kom mér á óvart hvað við eigum mikið af þeim!

en ekki nema 2 mánuðir í að krílið eigi að láta sjá sig, og sama með að hann Sigurbjörn minn verði eins árs!! 8|  roooosalega er tíminn fljótur að líða!

Er eitthvað voðalega andlaus samt þessa dagana, er eiginlega bara hálf lost eitthvað.. alltaf það sama alla daga, nema kannski um helgar. Verð að reyna eitthvað að brjóta þetta upp. Það verðutr nú samt nóg að gera hjá mér þegar börnin verða orðin 2 :)  þannig að...

Jæja, þetta er komið gott, þar sem ég hafði ekki hugmynd um hvað mig langaði að segja, langaði bara að segja eitthvað :P

Þangað til seinna

Hófý 


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.01.2008 20:41:24 / Hófý

Hallú

Langaði bara að láta vita að ég er á lífi :)

Það er svo sem ekkert að frétta hér, allt bara við það sama

Vinna hjá Brynjar og við mæðgin heima að dúlla okkur.

Hvað er annars að frétta af ykkur? 


» 11 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 17:46:10 / Hófý

Some people just can't take a hint!

Það er ekki eins og það ætti að hafa farið framhjá manninum að íslendingar bara vilja hann ekki í forsetastólinn...

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17
Heimsóknir
Í dag:  10  Alls: 87042
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 471 dögum
Erum við búin að vera saman í 7 ár!
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 477 dögum
Verður Brynjar 36 ára
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 430 dögum
Verð ég 24 ára
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Klukkan
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 360 dögum
Verður Sigurbjörn tveggja ára
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 355 dögum
verður Ingibjörg Jóna eins árs
Tenglar